Móðir mín hefur kennt mér margt, það nýjasta fyrir örfáum dögum. Hún sagði að þegar kennsla væri aðlöguð að hópnum sem á að njóta hennar, þýddi það ekki að kennarinn sjálfur ætti að breytast. Það sé heillvænlegast að hver sé sá sem hann er. Hún er sú sem hún er, ég er sú sem ég er.
Ég mun ætíð kenna á ákveðinn hátt, hvort sem viðmælendur mínir eru ungir eða aldnir. Þetta segi ég þér til þess að þú skiljir afhverju ég mun ef til vill ekki kenni þér eins og þú ert vön. Ég er ekki predikari. Ég vil ekki halda langar ræður sem fara inn í eitt eyrað og út um hitt. Ekki vegna þess að vilji hlustenda sé ekki til staðar. Nei, vegna þess að við lærum best ef öll skilningarvit okkar eru virkjuð.
Að SJÁ, HEYRA og GERA.
Þannig vil ég kenna, af því að ég trúi staðföst á það að við lærum betur þannig. Ég mun ekki biðja þig að gera eitthvað furðulegt og auðmýkjandi, enda eru margar ykkar eldri en ég og það er mitt að koma fram við ykkur að virðingu. En ég mun taka mér það bessaleyfi að biðja þig um að ÍHUGA orð Drottins til að þau grundvallist í þér.
Í dag ætla ég að fjalla stuttlega um kjarnaefni vetrarins. Þetta er í raun inngangskennsla til að gera þig spennta og viljuga að mæta á þær sem fylgja munu. Ég vil hvetja þig til að stunda allar kjarnakennslurnar þrjár í vetur, einnig að vera með skriffæri, blöð eða dagbók og BIBLÍUNA. Það er vilji minn að við lærum saman úr orði Drottins í vetur. Við verðum að hafa kennslubókina með í tímann, ekki satt?
Saga tveggja systra
Á ferð þeirra kom Jesús í þorp nokkurt og kona að nafni Marta bauð Honum heim. Hún átti systur er María hét og settist hún við fætur Drottins og hlýddi á orð Hans. En Marta lagði allan hug að veita sem mesta þjónustu. Og hún gekk til Hans og mælti: „Herra, hirðir þí eigi um það, að systir mín lætur mig eina um að þjóna gestum? Seg Þú henni að hjálpa mér.“
En Drottinn svaraði henni: „Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu, en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið.“
(Lúkas 10:38-42)
Ég ætla að kynna þig fyrir tveimur konum.
Þetta er María. Við vitum ekki margt um Maríu enda er eingöngu minnst á hana þrisvar í ritningunni. Ég dreg þó þá ályktun af þeim versum að María sé rólind, afslöppuð, yfirveguð og ástríðufull, draumóramanneskja með höfuðið í skýjunum. María á systur.
Hún heitir Marta. Þegar ég les um Mörtu, ýminda ég mér hana sem kraftmikla, vinnusama, dugnaðarkonu með fullkomnunnaráráttu. Ég sé sjálfa mig í henni.
Nú vil ég biðja þig um að skoða fyrsta atriðið á blaðinu þínu. Hvaða hugmyndir hafðir þú um Maríu og Mörtu áður en þú sást mínar hugmyndir? Hvorri finnst þér þú líkjast meira?
Ég veit ekki hvorri þér finnst þú líkjast. Kannski blöndu af báðum, kannski hvorugri. Ég veit ekki hvað þú hefur gert í dag eða undanfarið. Kannski ertu í fullri vinnu, skóla, auka skóla, auka vinnu, átt börn, mann, heimili, gæludýr, foreldra sem þarf að hugsa um, ert í kór, félagstarfi, hjálparstarfi, afþreyingu. Dagarnir okkar eru misjafnir en öruglega eru þið alltaf jafn uppteknar. Sumar sáu sér ef til vill ekki færi á að koma í dag vegna anna.
En þrátt fyrir annir okkar langar okkur öruglega allar að tilbiðja Drottin eins og María en Martan innra með okkur knúir okkur áfram.
Heimur Mörtu
Sagan er aðeins fjögur vers í biblíunni en ég get vel ýmindað mér aðstæðurnar. Í upphafi er Marta og hennar dugnaður í brennidepli . Reynið að setja ykkur í hennar spor, það er öruglega engin vandi. Jesús kemur í bæinn ásamt 12 öðrum karlmönnum, haugskítugir, þreyttir og svangir. Marta hefst handa, byrjar að skipuleggja hvað hún á að bjóða upp á, sendir ef til vill þjón að slátra kálfi, annan á markaðinn, ákveður hvernig dúk hún á að nota-HVAR ER MARÍA? Ef María leggur nú á borð gæti Marta brotið servétturnar, ætla þeir að gista, þá þarf að setja utan um rúm og brjóta saman handklæði-HVAR ER MARÍA? Ef María býr um rúminn og tekur til konfekt á koddana þá getur Marta skorið örk úr osti og lítil dýr úr ávöxtum-HVAR ER MARÍA? Hún kemur auga á systur sína, sitjandi við fætur Jesú, í karlapartíi og gónir á Son Guðs. Þá arkar Marta inn og ætlast líklegast til að Jesú taki hennar hlið, en hvað segir Hann?
Jesús ætlast nefnilega ekki til MEIRA af okkur, í rauninni er það MINNA.
Hjarta Maríu
Eins og ég sagði áður þá eru systurnar aðeins nefndar þrisvar í Biblíunni (Lúk. 10:39-42, Jóh.11:1-44, 12:1-11). Þessir ritningarstaðir gefa okkur innsýn í líf systranna í Betaníu. María virðist hafa verið típan sem stoppar og lyktar af rósunum á meðan Marta hefði verið líklegri til að klippa þær, skera stönglana á ská, opna æðarnar á pönnu og raða í fullkomið form í vasa.
Það er hinsvegar eftirtektarvert að Jesús sagði ekki við Mörtu „Af hverju geturðu ekki líkst systur þinni meira Marta?“. Hann vissi að Marta yrði aldrei María og María yrði aldrei Marta. Allar erum við ólíkar og engin okkar betri en hin. En þegar systurnar fengu að velja á milli þess að vinna verkin eða dvelja í nærveru Drottins, valdi María betra hlutskiptið. Betra hlutskiptið er okkur því öllum til boða. Það er persónulegt val okkar, þó sumum sé það eðlislægara en annari.
Nú vil ég biðja þig um að skoða næsta atriði á blaðinu. Lestu ritningarstaðinn aftur og veldu eitt orð sem lýsir Maríu best og annað sem þér þykir lýsa Mörtu best.
Saga hverrar konu
Við getum flestar séð sjálfar okkur í þessari frásögn. Hluti af mér er eins og María, ég heyri Drottinn kalla og þrái að svara, en þá hringir síminn. Charles Hummel fjallaði um spennuna á milli þess mikilvæga og hins áríðandi. Það mikilvæga, eins og bæn og lofgjörð lætur í minni pokann fyrir hinu áríðandi sem krefst tafarlausra viðbragða.
En hvernig eigum við að haga okkur í þessum aðstæðum? Jesús er alltaf okkar fyrirmynd og Hann lét ekki kröfur heimsins á sig fá. Hann elskar okkur eins og við erum, Marta eða María eða sitt af hvoru. Hann er sá eini sem getur gefið okkur hjarta Maríu í heimi Mörtu.
En er það mögulegt? Ég hélt því lengi vel fram að ég væri ekta Marta og myndi líklegast alltaf vera Marta. Telur þú að það sé mögulegt fyrir okkur að breyta grunn persónuleika okkar? Skrifaðu hugmyndir þínar niður.
Byrjum á byrjuninni
Sú nánd sem María naut við fætur Jesú er ómögulegt að öðlast í ösinni hjá Mörtu. Í reiðubúningi sínum að þjóna Jesú, missti Marta næstum af tækifærinu á að fá að þekkja Jesú. Við getum fests í þessu fari. Að þurfa ávallt að sýna fram á ást okkar til Guðs með því að þjóna og sýna okkur. Við gerum allar verk í Hans nafni. Við köllum Hann „Herra, herra“. En mun Hann að lokum þekkja okkur? Munum við þekkja Hann?
Heimurinn hrópar; „Gerðu meira, lifðu lífinu til fulls, nýttu öll tækifæri, vertu allt sem þú getur orðið!“ En Faðir okkar hvíslar; „Vertu hljóður og veit að Ég er Guð“. Guð leytar ekki einungis að verkamönnum, Hann leytar fyrst og fremst að dætrum.
Ég bið þig að skoða versin þrjú sem eru næst á blaðinu þínu. Hvað segja þau um möguleika okkar á að breytast?
Ákallið
Ef til vill finnst þér þú uppgefinn á öllum verkunum. Þú ert kannski ein af þeim sem bíður þig fram í allt, undirbúning á kaffi, uppvask, þrif, safna fórn, ert í barnastarfinu, lofgjörðinni, stjórn á hinum og þessum nefndum, unglingastarfinu, glærunum og heldur að þú munir vinna þér inn ást Drottins með verkum þínum. Þú hugsar kannski uppgefin á kvöldin, er þetta allt?
Eða kannski hefurðu hætt allri þjónustu, þú hefur gengið þennan veg og gefist upp á öllu. Fólk er hætt að hringja, hætt að biðja þig um eitthvað. Og þú ert feginn. En samt hefur þú ekki fundið í rónni og næðinu það sem þú vonaðir eftir.
Þið spyrjið ykkur kannski, „Hverjar eru góðu fréttirnar? Getur einhver minnt mig á? Ég man það ekki.“
Hefur þú orðið vitni að því þegar Guð hefur umbreytt þér eða öðrum? Hvernig vissir þú að það var heilög umbreyting en ekki tímabundin andlitslyfting?
Góðu fréttirnar
Góðu fréttirnar er að finna í gegnum allt Nýja Testamentið og sjást vel í sögunni um Mörtu og Maríu. Lausnin er ekki fólgin í því sem þú gerir, heldur því sem Jesús gerði. Orð Jesú ættu að tala til okkar, „Þú ert áhyggjufull og mæðist yfir mörgu, en aðeins eitt er nauðsynlegt“ . Þetta eina felst ekki í því að gera meira. Það finnst einungis þegar setið er við fætur Hans. María kom ekki með gáfuleg svör eða ræddi kenningar. Hún hlustaði, hún var til staðar.
Það eina sem Jesús krefst af okkur er opið hjarta sem er reiðubúið að taka á móti. Jesús sagði, „Komið til mín, allir sem erfiði hafið og þungar byrðar og ég mun veita yður hvíld. Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá munið þér finna hvíld sálum yðar“. (Matteus 11:28-29)
Lestu versið yfir og undirstrikaðu lykilorð eða setningar. Ég vil að þið munið eftir þessu versi og geymið það í hjarta ykkar þegar við höldum út í ös dagsins.
Hvert svo sem framhaldið kunn að vera, þá hefst allt við fætur Hans. Það er mín hvatning til ykkar í dag. Dveljið við fætur Hans. Látið ámynningar heimsins um hvað hann vill að þið gerið sem vind um eyru þjóta. Við vitum ekki hversu langan tíma við höfum, nýtum hann vel í nærveru Drottins. Annað mun fylgja á eftir.
Fylgiblað
Hvaða hugmyndir hafðir þú um Maríu og Mörtu áður en þú sást mínar hugmyndir? Hvorri finnst þér þú líkjast meira?
__________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________
Lestu Lúkas:38-42 og veldu eitt orð sem þér þykir lýsa Maríu best og annað sem lýsir Mörtu best.
María_____________________ Marta_____________________
Ég hélt því lengi vel fram að ég væri ekta Marta og myndi líklegast alltaf vera Marta. Telur þú að það sé mögulegt fyrir okkur að breyta grunn persónuleika okkar?
__________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________
Hvað segja eftirfarandi ritningarstaðir um möguleika okkar á að breytast?
Ezekíel 36:26-27 ________________________________________________
2 Korintubréf 5:17________________________________________________
Filippíbréfið 1:6__________________________________________________
Hefur þú orðið vitni að því þegar Guð hefur umbreytt þér eða öðrum? Hvernig vissir þú að um heilaga umbreytingu var að ræða en ekki tímabundna andlitslyftingu?
__________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________
Lestu Matteus 11:28-29 og skrifaðu niður lykilorð eða setningar. Ég vil að þú munir eftir þessu versi og geymir það í hjarta þér þegar þú heldur út í ös dagsins.
__________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________

