Mæður í bæn

Síðasta vetur vöktum við athygli á bænahópunum Mæður í bæn en þar koma mæður saman og biðja fyrir börnunum sínum og skólum þeirra. Að minnsta kosti einn hópur var starfræktur á Akureyri veturinn 2010 – 2011 og var hann fyrir Glerárskóla og leikskólann Hlíðarból.

Í vetur viljum við hvetja allar mæður, ömmur, systur, frænkur eða hvern þann sem er þess heiðurs aðnjótandi að bera umhyggju fyrir ákveðnu barni, að taka þátt í Mæður í bæn.

Mæður í bæn er í hnotskurn bænahópar þar sem konur sameinast að biðja fyrir ákveðnum skóla og börnum sem þeim eru nákominn sem ganga í þann skóla. Hóparnir ákveða tímasetningu sem hentar vel og stefna á að hittast einu sinni í viku til að biðja samfleytt í klukkustund fyrir skólanum og börnunum. Æskilegt er að hver hópur eigi eitt eintak af bæklingnum Mæður í bæn en þar er að finna frábærar upplýsingar sem leiða hópinn af stað. Nánari upplýsingar um starfið er að finna hér.

Líkt og áður kom fram var einn hópur starfandi síðastliðinn vetur og var hann fyrir Glerárskóla og Hlíðarból. Fleiri áhugasamir skráðu sig til þátttöku og munu fara af stað á þessu hausti. Það sem skiptir máli heldur að fara af stað í trú með velferð barna okkar að sjónarmiði. Hópar sem munu hefja göngu sína eru fyrir Síðusel, Lundarskóla og Brekkuskóla, Glerárskóla, Hlíðarskóla og Hlíðarból og VMA. Við hvetjum allar þær konur sem vilja taka þátt eða staðfesta fyrri skráningu að hafa samband við okkur á facebook, senda tölvupóst á akureyri@jesukonur.is eða tala við Jóhönnu Sólrúnu (s: 8620350) sem heldur utan um starfið á Akureyri.

Fern Nichols, stofnandi Moms in Touch International, ásamt fleirum í Focus on the Family